Fyrir brottför:
1) Lykill sóttur og greiðsla innt af hendi að Garðastræti 8, Reykjavík
Heimasími er 552 5326.
Ef ekki svarar þar næst yfirleitt í Gunnar í gemsa 698 3526. Þessi númer er nauðsynlegt að hafa með út, ef eitthvað skyldi bjáta á.
2) Símanúmer í íbúðinni í París:
Ef hringt er frá Íslandi: 00 33 1 44 78 95 56
Ef hringt er innan Frakklands: 01 44 78 95 56
Heimilisfang: C/O M. Halldórsson; 23 rue Meslay; 75003 Paris
Kóði við útidyr eftir klukkan 8 að kvöldi og á sunnudögum: 48964. (Annars bara “P”) Gengið er inn úr porti fyrsta stigagang til hægri. Dyrabjallan fyrir íbúðina er merkt KATZ. Lyftan nær upp á 6. hæð – íbúðin er á 7. hæð til vinstri.
3) Nóg er af handklæðum og rúmtaui í íbúðinni. Sjálfsagt er að hafa með sér regnfatnað en regnhlífar eru til staðar. Það eru net-kaffihús út um alla borg, ef fólk nennir ekki að hafa með sér fartölvuna. Allt áfengi er ódýrara í búðum í París en í fríhöfninni í Keflavík. Aftur á móti eru snyrtivörur og tóbak á betra verði í fríhöfninni.
Eftir lendingu:
1) Lestin frá Charles de Gaulle flugvelli inn til Parísar kostar 9.50 evrur á mann. Enginn afsláttur er fyrir börn né námsmenn. Miðinn gildir fyrir innanbæjarlestina líka. Leigubíll frá flugvellinum að Meslay-götu kostar að jafnaði 50 – 70 evrur. Það fer mikið eftir umferð og oft eru teppur á aðalæðum sem geta tafið ferðina og aukið kostnaðinn. Sumir leigubílstjórar taka aukagjald fyrir ferðatöskur. (Eina eða tvær evrur fyrir hvern pinkil.)
A) Við mælum með lestinni: Frá tollhliði eru góðar merkingar að ókeypis sporvagni að lestarstöðinni – sú ferð tekur 5 mínútur. Lestarpallurinn er vel merktur. Lestir renna hjá á u.þ.b. tíu mínútna fresti, á tveim sporum beggja vegna pallsins, báðar til Parísar. Yfirleitt fer önnur hver lest beint inn í borg og er u.þ.b. 30 mínútur á leiðinni; hin stoppar í öllum útborgum og tekur u.þ.b. 50 mínutur. Farið er úr lestinni á fyrstu stöð í París, “Gare du Nord”. Skilti blasa við alstaðar með “M” í hvítum hring og vísa á mismunandi metrólínur. Fylgið skiltunum að hinni appelsínugulu línu M-5 og veljið direction “Place d’Italie”. Hámarksbið eftir lest er 3 mínútur. Þriðja stopp lestarinnar er “République” þar sem hoppað skal út. Fylgið svo bláum skiltum “Sortie” til að komast út undir bert loft. Hvar sem komið er út blasir við styttan á Lýðveldistorginu miðju. Kona sú horfir í átt að götunni “Rue de Temple”. Fyrsta gata til hægri frá henni er Rue Meslay – ef töskur eru þungar og fætur lúnir gæti tekið sex mínútur að rölta að réttu húsi, nr. 23. Hámarkstími ferðalagsins frá tollhliði, með öllum biðstundum, er u.þ.b. einn og hálfur klukkutími – frekar þó einn ef allt gengur snurðulaust.
B) Ef valinn er leigubíll: Fylgið merkingum að “Taxi to Paris”. Venjulegir 5 manna fólksbílar taka ekki fleiri en þrjá farþega. Allir leigubílar sem þarna eru í boði starfa hjá leigubílastöð - langflestir bílstjórarnir heiðarlegir og keyra eftir mæli. Samt er alltaf ráð að inna bílstjórann eftir verði og tíma (sem þeir reyndar geta ekki gefið nákvæmt), og farangursgjaldi – þeir eru flestir mellufærir á ensku. Nefnið eða sýnið heimilisfangið og takið fram að gatan sé í 3. hverfi (arrondissement) Parísar, við “Place de la République”. Ómögulegt er að lofa nokkru um ferðartíma – en hann er lágmark 40 mínútur. Aðvörun: Gætið þess að fara ekki upp í bíl hjá leigubílstjórum sem standa inni í flugstöð og veiða farþega. Þeir svindla og okra.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment